
Háls og kjálka móttaka
Kannast þú við eitthvað af eftirfarandi vandamálum, eða þekkir einhvern sem er að glíma við eitthvað af þessum hvimleiðu vandamálum?
Við hjá Stíganda sjúkraþjálfun bjóðum upp á Háls og Kjálka Móttöku þar sem við förum ítarlega í fræðslu, skoðun og meðferð slíkra vandamála. Við höfum starfsfólk í okkar röðum með áratuga reynslu í þessum málum, auk þess erum við í góðum tengslum við tannlækna, kjálkaskurðlækna og heyrnarfræðing.
Þessi listi hér að neðan eru upptalning algengra einkenna kjálkavandamála. Kjálkinn er mest notaði liður líkamans og lendir því oft í allskonar ógöngum, oft tengdum hnykk áverkum (detta á svelli, bílslysum) langvarandi streytu (of spenna í tyggingarvöðvum) tannbreytingum (tanntökum, tannréttingum) og ýmsu fleiru.
Hafðu endilega samband við okkur og bókaðu þig í fræðslu eða fáðu tíma hjá einhverjum í teyminu og fáðu frekari upplýsingar.
Höfuðverkir
Augnvandamál
-
Verkir
-
Þurrkur
-
Óskýr sjón
Munnhol
-
Sprungur og tannför í tungu
-
Sár og/eða línur í kinnum
-
Munnþurrkur
Tennur
-
Verkir í tönnum (gnísta eða bíta saman)
-
Los í tönnum
-
Tannkul
Framanverður háls
-
Erfitt/sárt að kyngja
-
Hæsi/hósti/ræskingar/raddbeiting erfið
-
Ógleði
Kjálkar
-
Smellir/brestir
-
Verkir/þreyta í liðum eða tyggingarvöðvum
-
Erfitt að opna/loka munni
Háls
-
Stífleiki/þreyta/verkir
-
Höfuðverkir/svimatilfinning/ógleði
-
Verkir í öxlum/herðum/brjóstbaki