top of page

Tilkynningar

17.11.2026
Þjónustukönnun Stíganda sjúkraþjálfunar
Nú stendur yfir þjónustukönnun þar sem markmiðið er að bæta þjónustu og aðstöðu Stíganda sjúkraþjálfunar enn frekar. Við viljum heyra hvað gengur vel og hvað mætti betur fara, og því skipta svör skjólstæðinga okkar miklu máli.

Könnunin er send skjólstæðingum í tölvupósti, en með SMS-skilaboðum þar sem netfang er ekki skráð. Prósent sér um framkvæmd könnunarinnar og leggur mikla áherslu á trúnað og örugga meðferð persónuupplýsinga. Gætt er að því að ekki sé hægt að rekja svör til einstakra svarenda.

Það tekur um 3 til 5 mínútur að svara könnuninni.

Að könnun lokinni drögum við út einn heppinn þátttakanda sem hlýtur gjafabréf fyrir tvo í Reykjaböðin (Signature aðgangur) að verðmæti 33.800 kr. Haft verður samband við vinningshafann.

Við þökkum skjólstæðingum okkar kærlega fyrir þátttökuna.

29.12.2023 
Stígandi sjúkraþjálfun mun hækka verðskrá sína um 2% þann 29. desember 2023. 

06.02.2023 ​
Núna er í gangi þjónustukönnun þar sem markmiðið er að bæta þjónustu Stíganda sjúkraþjálfunar enn frekar. Könnunin er framkvæmd af Prósenti sem leggur mikla áherslu á trúnað og örugga meðferð persónuupplýsinga. Gætt er þess að ekki sé hægt að rekja svör til einstakra svarenda.

Eftir að könnun lýkur munum við draga út einn heppinn þátttakanda sem hlýtur 20.000 króna bankagjafakort. Það tekur um 3 til 5 mínútur að svara könnuninni.

Við þökkum skjólstæðingum okkar kærlega fyrir þátttökuna.

 

599 1600

Stígandi sjúkraþjálfun
Kt. 520220-2160

Heilsuklasanum

Bíldshöfða 9

110 Reykjavík

©2026 by Stígandi sjúkraþjálfun.

bottom of page